23 going on.....
fjúff...seinasti dagurinn minn sem 23 ára skutla og unglamb .....á morgun verð ég 24 ára oldie....krumpuð, með celló, augnpoka og fráskilin.....nei asskotinn.... það gerist ekki fyrr en eftir 40....nægur tími ennþá........
Ég fór í ríkið um daginn og var spurð um skilríki....mjög hress með það.....svo kom ég inn í bíl og fór að pæla...ég hlýt að vera orðin soldið oldie ef ég er stolt af því að vera spurð um skilríki...kræst!
Á laugardaginn er svo "útskrift" og ég segi útskrift í gæsalöppum því mér finnst þetta ekki vera útskrift í orðsins fyllstu merkingu þar sem maður er að klára BA próf og er að fara beint í meistaranámið í haust.... þess vegna bað ég mömmu um að gjörusvovel að afpanta snitturnar!!!En það verður samt haldið upp á það með einum litríkum kokteil um kvöldið og kannski tveimur danssporum ;)
<< Home