What´s cooking in the kitchen......

Dagbók

miðvikudagur, febrúar 21, 2007

Nú er það....

AMSTERDAM yfir helgina:o)
ferðasaga og fleiri sögur koma innan skamms....þangað til má fletta þessum myndum frá árshátíð Lögréttu sl. fimmtudag;)

http://myndir.ekkert.is/liljagu/arshatid+logrettu+2007/

tjúss
Lilja

miðvikudagur, febrúar 14, 2007

Túttí frúttí....

Jæja það er voða gleði og gaman þessa dagana, Árshátíð Lögréttu er á morgun og núna sit ég hérna heima og stínka af brúnkukremslykt...Er að velta fyrir mér hvort ég eigi að fara í þröööönga kjólnum þar sem ég er eins og hert rúllupylsa eða græna glimmerkjólnum þar sem ég er eins og sjæní sæhæstur.... humm kemur í ljós....
Held ég þurfi líka alveg að worka "sex appeal-ið" upp aftur þar sem ég er að fara all svakalega með það í skemmtiatriðinu sem við gerðum ( sem er by the way myndband) sjææææse....held það verði ekki litið á mig sem kynveru í allllll langan tíma eftir sýningu þess.....án þess að fara nánar út í "details"....kvíði bara mest fyrir því að við (sem gerðum myndbandið) verðum einu í salnum sem mígum á okkur af hlátri...á meðan aðrir hugsa "lúnitikks"....á meðan öðrum er ef til vill misboðið og fara heim vegna særinda á blygðunarkennd þeirra....

we will see.....
smútsí
-Lilja sexý-

miðvikudagur, febrúar 07, 2007

Lúðína Jóns

- part 2 -


Ég er svo kúl að ég bara verð að halda áfram að segja ykkur frá því....Ég skellti mínu fagra fési í húðhreinsun í Laugum spa í seinustu viku...fyrir ykkur sem vita ekki hvað húðhreinsun er þá er það laaangt í frá að vera eitthvað dekur dót..no no það er ógó vont og maður verður mjööög ljótur eftir það......sjá mynd


Enívei...þá er ég náttlega kreist og kramin eins og tjernóbíl-slys eftir þetta þannig að ég ætlaði að "lay low" og læðast með fram veggjum beint út í bíl. Þegar ég byrja að labba út úr snyrtistofunni var ég ekkert mikið að horfa upp (þetta var ekki beint besti dagurinn útlitslega séð ..jú know) strunsa áfram þangað til ég BOMBA á eitthvað Redken hárgreiðslu auglýsingaskilti sem er fyrir framan innganginn og dett. Afgreiðslukonan kom og spurði hvort það væri ekki í lagi ...og ALLIR í kring sáu náttlega tjernóbíl-feisið. Daginn eftir sá ég mynd af mér inná www.ugly.com ....



Annars er það helst í fréttum að við TÚTTURNAR ætlum að halda árshátíðina okkar á laugardaginn, hittast og viðra þær. Það er ekki á hverjum degi sem þetta gerist skal ég ykkur segja....... ssjjjjjjææææææse hvað það verður gaman!!


Góðar Stundir....


-skál-


Tjérnóbíl