Hola Hellú Hæ
Jæja loksins drullast ég til að henda inn færslu...en það er nú bara einu sinni þannig að þegar maður fer í svona yndislegt sumarfrí (2 vikur á Króatíu) er frekar erfitt að koma sér í gamla tempóið...svo ég reyni að afsaka mig pínu pons;)
Já sem sagt Króatía var alveg yndisleg, mæli með þessum stað tvímannalaust! Dagarnir fóru flestir í afslöppun; sundlaugarbakkinn, ströndin, út að borða, gott hvítvín, kokteilar, rölta um bæinn, svo ferðuðumst við aðeins, fórum í dagsferð og silgdum um Istríu-skagann:) bjútífúl....
Ég er strax orðin föl ..búhúuúú, er í húðskiptum eins og er og er flekkótt eins og tæger! Fór í sund á sunnudaginn og þar var lítil stelpa sem sagði hátt og skýrt við mömmu sína " mamma af hverju er stelpan MEÐ SVONA HVÍT BRJÓST" og benti á mig .....mamman var mjööög vandræðaleg og reyndi bara að hósta hátt og drífa sig ofan í laugina...muhahahha.....bikiní farið allavega ennþá til staðar:)
En Uss sumarið fer bara að styttast allverulega....minns langar það ekki:( Finnst ég ennþá eiga eftir að gera fullt af hlutum...humm
svo er það versló....hvad skal man göre!???!
ps. held ég setji ekki inn myndir frá Króatíu ..sökum fyrri reynslu á að setja myndir hingað inn!!
<< Home