What´s cooking in the kitchen......

Dagbók

þriðjudagur, júlí 25, 2006

Hola Hellú Hæ

Jæja loksins drullast ég til að henda inn færslu...en það er nú bara einu sinni þannig að þegar maður fer í svona yndislegt sumarfrí (2 vikur á Króatíu) er frekar erfitt að koma sér í gamla tempóið...svo ég reyni að afsaka mig pínu pons;)

Já sem sagt Króatía var alveg yndisleg, mæli með þessum stað tvímannalaust! Dagarnir fóru flestir í afslöppun; sundlaugarbakkinn, ströndin, út að borða, gott hvítvín, kokteilar, rölta um bæinn, svo ferðuðumst við aðeins, fórum í dagsferð og silgdum um Istríu-skagann:) bjútífúl....

Ég er strax orðin föl ..búhúuúú, er í húðskiptum eins og er og er flekkótt eins og tæger! Fór í sund á sunnudaginn og þar var lítil stelpa sem sagði hátt og skýrt við mömmu sína " mamma af hverju er stelpan MEÐ SVONA HVÍT BRJÓST" og benti á mig .....mamman var mjööög vandræðaleg og reyndi bara að hósta hátt og drífa sig ofan í laugina...muhahahha.....bikiní farið allavega ennþá til staðar:)

En Uss sumarið fer bara að styttast allverulega....minns langar það ekki:( Finnst ég ennþá eiga eftir að gera fullt af hlutum...humm

svo er það versló....hvad skal man göre!???!

ps. held ég setji ekki inn myndir frá Króatíu ..sökum fyrri reynslu á að setja myndir hingað inn!!

þriðjudagur, júlí 04, 2006

Jæja elskurnar mínar nú kveð ég ykkur aftur að sinni....kellan þarf að kíkja til Króatíu....ætla næla mér í smá bikinífar......allavega vona ég að veðrið þar sé skárra en hér á ÍÍÍÍÍS-landi!


*SJÁST* ;)