What´s cooking in the kitchen......

Dagbók

föstudagur, apríl 07, 2006

P.I.M.P.

Ég fór í ræktina í gær til að hreyfa útflata læri-rassgatið á mér og steig á hlaupabrettið, eftir smá stund kom maður við hliðin á mér. Hann hefur örugglega verið 50 + ...sem sagt orðinn pínu hrukkaður og komin með gráa vanga. Nema hvað í sporthúsinu eru flatskjár við hvert hlaupabretti og vinur minn við hliðiná flettir á milli nokkra siðsamlegra stöðva ( CNN, NFS , alþingi á rúv og fleira djúsí) á milli skiptinga sér hann Sirkús og greinilega var eitthvað að gerast þar sem honum fannst interesting. Á Sirkús var verið að spila "P.I.M.P." lagið hans 50 cent, nema hvað gamli gráni stöðvar við það og fer að horfa á myndbandið með fyllstu ákefð. Þið ykkar sem hafið ekki séð myndbandið þá er það nokkurn veginn svona.....

Já já vinur minn 50 og eitthvað + horfði á þetta áhugasamur og ég er ekki frá því að hann jók hraðann á brettinu úr level 7 yfir í 10.....

Allir eru þeir víst með lítinn pimp í hjarta sínu...at every age....