What´s cooking in the kitchen......

Dagbók

mánudagur, febrúar 07, 2005

ohhhhh núna er ég niðrí skóla, brunaði alveg á milljón, tíminn átti að byrja kl 11 en neee þegar ég kem er bara allt lokað og læst....þrefaldur tími féll niður:( dúddí dú.... þannig að ég drep bara tímann með smá bloggi (ætti samt að lesa..;)

Helgin var bara á 5000 snúningum! Á föstudeginum var pantaður flutningabíll og allt heila klabbið var flutt upp í íbúð og flutningarnar héldu áfram alla helgina.....þannig að núna er ég komin upp í sveit:) Ótrúlega skrýtið að vakna ekki heima hjá sér eins og maður hefur gert seinasta 21 árið..... maður er bara frekar lúinn eftir helgina. Verð nú að viðurkenna það að mér finnst mega gaman að "decorade-a" og vildi helst taka mér vikufrí og vera bara dudda mér í íbúðinni;)
...svo er það bara innflutingspartý ..í fleirtölu, fólki verður líklegast boðið í hollum og svo þjappað hehe;)
hafiði góðan mánudag...;)