Heit og sveitt, "Sækó" ...M&M-kúla
urrr...aftur bruna ég niðrí skóla í 5. gír og enginn tími! Alveg að sjá það að vera ekki net-tengd er alveg offff:( Og nú bíð ég óþreyjufull eftir adsl tengingu upp í sveit:)
Í gær var öskudagur og ég var með unglinganámskeiðið góða ( 8,9,10. bekkur) Ég sagði auðvitað folöldunum mínum að mæta í búning...það væri skylda! Svo mæti ég mega hress, sem eldrauð M&M kúla með rautt hárband í stíl, málingu og allan pakkann! Fékk aðeins eitt augnráð þegar ég labbaði inn í salinn "sækó", þetta var alveg fyrir neðan þeirra viðringu muhahahha. Ég var náttlega ein í búining og sem M&M kúla í þokkabót hahahaha. Sumar voru reyndar e-d málaðar en ekkert að missa sig neitt einsog ég; bara eitt hjarta á annarri kinn eða álíka. M&M -kúlan lét ekki slá sig út af laginu og byrjaði tímann, komst mjög fljótt að því að búningurinn andaði ekkert, þetta var greinilega ekkert nike "dry-fit" -efni! Það stoppaði ekki M&M kúluna, hún hélt ótrauð áfram rauð eins og gallinn í framan af hita, að kafna úr innilokunarkennd en þetta hafðist allt hahahaha:)
Nú er bara að koma helgi..jeij! .....what goes around comes around....;)
stanslasust stuð
kveðja frá rauðu M&M-kúlunni;)
<< Home