Sömmer Sömmer
Sumarfílingurinn er aftur að læðast inn í "systemið" eftir mikið áfall og bakslag þegar það SNJÓAIÐ í seinustu viku!! kræst ......anyways þá er sólin búin að glóa seinustu daga og svei mér þá ég held ég hafi náð að losa mig við "lík-lúkkið" sem er búið að vera á fésinu mínu síðan í október á síðasta ári....Hvernig veit maður hvort maður finni sumarfíling gott fólk? jú....
- maður vaknar um helgar við krakkaöskur í garðinum (fokkins trampólín)
-nefrennsli og bólgin augu farin að láta láta á sér kræla (frjókornaofnæmi)
-sundlaugarnar eru stappaðar (hætt að fara í Salalaugina..var að hlaupa út í laug um daginn þegar að ég fattaði að það var risa sundmót í gangi og var næstum búin að eyðileggja skriðsundið hjá einum keppanda, fékk morðaugu frá áhorfendum...)
-sef ALLTAF með prinsessu-svefngleraugun mín núna því það er bjart 24/7 (það er svona til að hafa svart yfir augunum ;)
-búin að kaupa sumarblóm á svalirnar fyrir miiiikinn pening ( ein vindhviða og þau eru dauð...kannski ekkert sérstakega góð fjárfesting)
-farin að sjá miklu fleiri brjóstaskorur á djamminu...
-byrjuð að lesa bækur .....ANNAÐ en lögfræðibækur!!! ....................skrýtið hvað ég er miklu fljótari með þessar og dett aldrei út ......
-búin að panta mér bikini á Victorias Secret...það var of stórt og lýsi hér með með kaupanda...(þessar victoriu fyrirsætur, Gisela, Adrianna og co. eru heldur ekkert að hjálpa til þegar það kemur að því að finna réttu stærðina, maður verður pínu brenglaður að horfa á þær ...þær eru í "un-human" stærðum....32 DDD fyrir brjóstin og XXS fyrir bossann.......bitur ? neeeeeeei
Ég miðaði bara við þessa....við erum geðveikt svipaðar í vextinum held samt að ég sé með aðeins stærri barm.....múhahahaha
Jæja nóg um góða brandara
Chow.... í bili
-Lilja sömmer sun-